left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Saturday, June 17, 2006
 
Sælar
Til hamingju með að vera komin af stað aftur Jónína mín, ekkert smá gaman!
Ég held að hin hallærislega stjórn ÍKFÍ viti ekkert af því að okkur finnist JAKO gallarnir hroðbjóðslega ljótir. Ég held við ættum að senda Ásdísi póst um þetta því þetta er vonlaust að einhver stjórn haldi að allir séu geggjað að fíla JAKO leikfimigallann. Við verðum að láta hana vita og helst alla stjórnina.

Kv,
Vaka í leikfimigallabaráttuhug



 
Hæhæ
Gleðilega þjóðhátíð. Svei mér þá ef það er nú ekki aðeins bjartara en þegar ég vaknaði og jafnvel búið að stytta upp í bili. Gott gott. En Jónína mín innilega til hamingju með krílið. Alltaf gaman að fá svona skemmtilegar fréttir. Vonandi ferðu nú bara að hressast svolítið svo við getum farið að hitta þig. Mamma mín á líka afmæli 20.júní svo það er bara fullt af fólki sem á þennan dag. Ég var hins vegar sett á lítinn skammt af blóðþrýstingslækkandi lyfjum svona ´fram að fæðingu þar sem blóðþrýstingurinn hafði ekkert lækkað síðan á mánudaginn síðasta uuuuuu boring. Er sem sagt bara í rólegheitum núna en er alveg að mygla að hanga svona inni. Nú vantar bara sólina aðeins til að hressa mann við. Annnars er ég bara voða hress og finn ekki fyrir neinu vona bara að barnið mitt komi sem fyrst alla vega að ég þurfi ekki að bíða langt fram í júlí. Er samt alltaf að reyna að segja honum að ég sé alveg tilbúin núna. Hahahah voða líklegt að hann hlýði því. :-)
Annars er ég alveg sammála ykkur með þessa Jako-galla. Mér finnst alla vega þessir gallar sem við eigum ekkert flottir og ég nota minn aldrei, þykkur og ljótur. Skil ekki afhverju það er ekki hægt að leggja eitthvað aðeins meira í þetta og hafa þetta svolítið flott. Við getum kannski haft áhrif á þetta með því að senda athugasemd á 'IKFÍ-heimasíðuna eða bara beint til Ásdísar. Alla vega vona ég að þeir verði ekki eins og þeir síðustu. Ég fílaði mig alltaf eins og ég væri í karlalandsliðinu í handbolta eða einhverju svoleiðis.
En jæja hafið það gott í dag og góða helgi. Ætla að skella litlu kellunni minni í bað, hún bíður eftir að fara niður í bæ í dag í eitthvað 17. júní stúss.
síjú, Fanney




Thursday, June 15, 2006
 
Hæhæ
Vill einhver segja mér hvar þetta blessaða góða veður er sem á að vera á sumrin þegar maður er i sumarfríi og þarf á góðu veðri að halda meðan maður bíður eftir að eitthvað gerist. Dísus er alveg að fríka ut á þessari rigningu og roki hér og ekkert virðist vera á förum ojjj miglað. Eru ekki annars allir hressir í dag??? Jane mín nú er farið að styttast rosalega í þetta hjá þér ohhh bara gaman sérstaklega þegar maður þarf ekki að bíða neitt. En það er ok. því þú þurftir að bíða lengi síðast svo þú átt þetta alveg inni. Annars er blóðþrýstingurinn á uppleið hjá mér þessa dagana. Mældist 130/100 á mánudaginn síðasta og á að koma aftur á morgun í mælingu. Svo það er vonandi að hann mælist aðeins lægri þá en á samt ekki von á því að hann hafi hrapað eitthvað þar sem mér finnst svolítið erfitt að gera bara ekki neitt. Reyni þó að vera þæg og hvíli mig inn á milli en mig langar meira en nokkurn tímann að fara út í hressandi göngutúr og allt svoleiðis. Stelst þó til að ganga í rólegheitum með skvísuna á leikskólann og svoleiðs. Annars er bara allt í fína og maður er bara hress og kátur.
Hvað eru þið svo að bralla í fríinu ykkar skvísur?

Hafið það gott og vonandi kemur sólin til okkar sem fyrst.
kv. Fanney




Tuesday, June 13, 2006
 
Góðan og blessaðan daginn dömur, takk fyrir síðast.... úff hvað var mikið borðað ehehe Jæja, þá er bara einn dagur eftir í vinnunni.... loksins komið að því en á morgun er óvissuferð hjá okkur, tjútt og djamm sko....
Annars vildi ég bara segja ykkur frá því að ég fór í Jako búðina í dag til að forvitnast um íþróttakennaragallana sem við eigum að fá í haust. Mér fannst frekar litlar upplýsingar um gallana í blaðinu sem við fengum á dögunum og sendi fyrirspurn á ikfi.is en enginn hefur svarað mér þar EN það verða gallar með kvennsniði :) jibbí jey
Ég mátaði galla nr. 42 sem átti að vera í svipuðu sniði og þeir gallar sem við fáum og ætla ég að taka nr. 40 þ.e.a.s. medium galli.... vildi bara láta ykkur vita ef þið voruð eitthvað að spá í þessu :) hehehe
Kv. ein með æluna upp í háls af vinnu sem er verið að bæta á mann bara til að halda manni lengur í vinnunni en samt lukkuleg með að það sé aðeins einn dagur eftir :)



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel