left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Thursday, June 22, 2006
 
Jane, til hamingju með STÓRA prinsinn :) en var ég kannski ekki að hlusta í síðasta saumó, var ekki gólfið 5. júlí????
Ein sem er mjög ánægð með sólina síðustu daga :)




Tuesday, June 20, 2006
 
Sælar

Jane til hamingju með prinsinn. Hlakka til að heyra keisarasöguna? Vaka slaka í sumarfríi.




Sunday, June 18, 2006
 
Til hamingju með bumbubúann Jónína :) Það er búið að vera nóg að gera síðustu daga, eins og Jane sagði þá var ég í óvissuferð á miðvikudaginn og var frekar mikið stuð. Áfangastaðirnir voru Heiðmörk og Viðey, tjútt og djamm frá kl. 13 fram á miðnætti :) Doldið þungur hausinn á fimmtudeginum þegar ég sótti norsku vini mína á flugvöllinn :) hehehe Eins og einhverjir vita þá kom norsk vinkona mín og kærasti í heimsókn til Íslands til að gifta sig þannig að ég er búin að vera á fullu í brúðkaupsundirbúningi síðustu vikurnar :) Þau giftu sig í gær í Hallgrímskirkju og auðvitað fór athöfnin fram á norsku.... ótrúlega vel heppnað allt saman og þau ýkt ánægð.... enduðum daginn á að borða í Perlunni og var maturinn mjög góður þar :)
En gallarnir já, eins og ég sagði þá fórum við að máta gallana í Jako en hann átti ekki allar stærðirnar og hann sagði að Ásdís væri með allar stærðir hjá sér. Ég var búin að lýsa óánægju minni á umræðuvef Íþróttakennarafélagsins og endilega ef þið eruð ekki ánægðar látið þá heyra í ykkur... þýðir ekkert að vera að umla þetta úti í horni og vera síðan alltaf þvílíkt óánægður. Ég veit að það verður kvennasnið á göllunum, þ.e. jakkarnir eru styttri og aðsniðnari en veit ekki alveg með buxurnar... en það er rétt það er alltof heitt að kenna í þessu inni
ÞANNIG AÐ LÁTIÐ HEYRA Í YKKUR STELPUR
Farin að sofa, ræktin í fyrramálið :)
Adios
Helena



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel