left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Thursday, July 06, 2006
 
Innilega til hamingju með litla prinsinn Fanney :) Búin að kíkja á litla/stóra prinsinn hjá Jane og er hann bara flottur :) Annars allt fínt að frétta, bara að njóta þess að vera í fríi en það vantar bara þetta gula á himninum, sést alltof lítið þetta sumarið....
Jæja, nóg í bili, bíð bara eftir golfinu sem er á stefnuskránni næstu dagana hehehehe :)
Hasta luego
Helena




Tuesday, July 04, 2006
 
Til hamingju með prinsinn Fanney! Hæ hó! Gaman að drengirnir 2 séu komnir í heiminn. Svo veit ég að Torfi sem var settur á svipuðum tíma og JAne og Fanney átti stelpu um daginn (vona að ég muni rétt).
Af okkur í Kópavoginum er bara fínt að frétta. Við fjölskyldan ætlum til Tenerife 20. júlí og við Tinna Dögg verðum í 3 vikur en Doddi bara eina (mamma og pabbi koma þegar Doddi fer). Erna hjálpaði mér að græja ferð á viðráðanlegu verði:) :) Ég er svo glöð með að fara í smá sól þar sem mér finnst rigna út í eitt þetta sumarið. Ég kíkti á prinsinn hennar Jane um daginn og hann er alveg drop dead beautiful og nú hlakka ég bara til að sjá prinsinn þinn Fanney!
Bæjó!



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel