![]() |
![]() iki-skvisurFriday, July 21, 2006 Hæhæ. Já elskurnar takk fyrir síðast. Helena ég sé ekki neinar myndir. En nú erum við búin að opna svona myndasíðu svo þið getið séð hvað við erum sæt hahaha..... En slóðin er: http://public.fotki.com/haukurb og aðgangsorðið er storagerdi. ok. síjú beibs og góða helgi í blíðunni. Fanney Wednesday, July 19, 2006 ![]() Takk æðislega fyrir daginn í gær :) Þvílíkt skemmtilegt og lærði ótrúlega mikið af meistara Ólöfu :) Sammála Vöku, held að Ólöf losni ekkert við okkur núna :) hehehe Góða skemmtun í útlandinu stelpur en vonandi að útlandið sé komið til okkar núna :) brakandi blíða í dag og vonandi næstu daga líka.... Er að prófa að setja hér inn mynd af gulldrengjunum sem mættu í partýið í gær... endilega látið vita hvort þið sjáið myndina eða ekki :) Hasta luego Helena Hæ Takk fyrir síðast. Þetta var svo gaman. Hér með fer ég bara í golf með golfkennaranum mínum, Ólöfu að sjálfsögðu, sem er snillingur í að spila og kenna golf. Sætu mömmurnar Jane og Fanney komu með litlu ungana sína og leyfðu okkur aðeins að knúsa þá. Ég drap partýið með skákæði. Jæja, ég er að reyna að pakka því ég er að fara í 3 vikna frí til Tenerife. Síja í næsta saumó. Ólöf ertu til í að setja uppskrift af kjúllanum á bloggið? Adios Vaka Hæ Takk fyrir síðast. Þetta var svo gaman. Hér með fer ég bara í golf með golfkennaranum mínum, Ólöfu að sjálfsögðu, sem er snillingur í að spila og kenna golf. Sætu mömmurnar Jane og Fanney komu með litlu ungana sína og leyfðu okkur aðeins að knúsa þá. Ég drap partýið með skákæði. Jæja, ég er að reyna að pakka því ég er að fara í 3 vikna frí til Tenerife. Síja í næsta saumó. Ólöf ertu til í að setja uppskrift af kjúllanum á bloggið? Adios Vaka Monday, July 17, 2006 Hæhæ Takk fyrir kveðjurnar elskurnar mínar. Já rosa gaman að verða orðin tveggja barna móðir. Skrítið að segja þetta, haha.. En alla vega gengur bara mjög vel með guttann á þessum bæ. Kúkar endalaust mikið finnst mér, pissar drekkur og er voða duglegur að sofa líka. Sem er náttúrulega bara gott honum líður alla vega ekki illa á meðan held ég. Svo er hann bara voða vær og rólegur eins og mamma sín, hún er svo æðisleg. Annars gekk fæðingin líka bara vel. Haukur rétt náði að koma sér heim af vaktinni áður en ég átti. Hann var sem sagt að vinna þá nótt sem ég stóð í hríðum hér heima. Varð reyndar að biðja hann að koma eins fljótt og hann gæti og það var kl. 7.30 um morguninn og sem betur fer var hann búin með langa aðgerð sem hafði staðið nær alla nóttina. Ég var svo heima með Hildi sem svaf vært sem betur fer, ég með hríðir sem hörnuðu mjög fljótt sem ég bjóst alls ekki við og var ekki alveg að trúa því þetta gekk ekki svona fljótt síðast. Á milli hríða reyndi ég að pakka ofaní tösku og klæða mig og hringja í systur mína til að koma og vera hjá Hildi og biðja Hauk um að koma af vaktinni og svo í spítalann til að spyrja hvort ég mætti ekki koma. við vorum svo komin upp á fæðó kl. 7.45 og þá komin með 9 í útvíkkun og guttinn var fæddur 8.46. Þetta tók sem sagt allt um 6 klst. sem er bara fínt. Tók aðeins lengri tíma síðast. En þetta er bara gaman og mér finnst hann voða sætur. En ég held að við komum heldur ekki í golfið á morgun. Mig langar hrikalega en ég held ég geti ekki farið svona lengi í burtu frá pungsa litla og vil heldur ekki vera með hann svona lengi úti í einu. Hef reyndar ekki farið út með hann enn nema bara í bíl á milli staða. En ef þið ætlið að gera svo eitthvað eftir golfið þá er eg til í að koma og hitta ykkur þá ef það er í lagi. Heyri í ykkur kv. Fanney |
![]() |