left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Thursday, October 19, 2006
 
Hæhæ skvísurnar mínar
Já þetta eru ofsalega sorglegar fréttir með hana Þuríði litlu hans Óskars. Úfff er búin að vera að kíkja á síðuna þeirra af og til síðustu daga og ég var með hnút í maganum þegar eg sá að það voru komnar niðurstöðurnar úr myndatökunni. Jesús minn hugsið ykkur líka að þurfa að taka þessa erfiðu ákvörðun um áframhaldandi meðferð eða ekki eða skurðaðgerð eða ekki. Já það eru ekki ófá tárin sem hafa runnið niður kinnarnar við lesturinn. Þurfti meira að segja að lesa sumt aftur bara til að vera viss að ég væri ekki að lesa vitlaust. Já maður er sko ótrúlega þakklátur fyrir heilbrigði barnanna sinna, þessir litlu gleðigjafar eru alveg yndislegir.

En ég vona að ég komist á næsta fimmtudag. Á pantaðann langþráðan tíma í klippingu og litun kl. 18.30. Margar vikur síðan ég pantaði tímann því hárgreiðslukonan vinnur bara á fimmtudagskvöldum þessar vikurnar. Verð bara að sjá hvernig staðn verður með litla guttann hvort ég komist eftir hárgreiðsluna eða ekki.




Wednesday, October 18, 2006
 


Ég reyni að komast 26. okt í næstu viku. Reikna alveg með að koma.
kv,
Vaka spaka



 
Þá er það ákveðið :) Vegna mikilla forfalla á morgun þá er saumó frestað fram á næsta fimmtudag, þ.e. þann 26. okt. Vaka helduru að þú komist ekki þá???? Sáttar með það??
Jæja en ætla að fara að horfa á meistaradeildina :)
HÓJ



 
Hurru, það eru einhverjar búnar að boða forföll á morgun, þ.e. Erna (líklega), Fanney (líklega), Ólöf og Hildur, ekki búin að heyra í Jónínu og Betu. Veit að Vaka á erfitt með á fim. í næstu viku og Ólöf og Jónína komast ekki þá en eru fleiri sem komast eftir viku?????
Velja kvöldið sem flestar komast, frekar leiðinlegt ef bara 3 komast...... Hvað segiði stelpur, koma svo, segja hvað ykkur finnst en það má auðvitað fresta því þá um 2 vikur??? Þ.e. þegar Jónína er komin heim frá útlöndum........................ ???????
Kv. Helena




Tuesday, October 17, 2006
 
Ólöf komdu í klúbbinn
kv,
V



 
Jábbs

Kv,
Vaka



 
Komast þá flestar á fimmtudaginn???
Is that a date???
HJ




Monday, October 16, 2006
 
Hæhæ
Skiptir eiginlega ekki máli fyrir mig hvorn fimmtudaginn það verður. Myndi koma seinna ef hann verður 26. okt. en þarf að redda einhverjum til að passa fyrir mig á fimmtudaginn í þessari viku svo það skiptir ekki máli fyrir mig hvor eða hvaða dagur verður fyrir valinu, kemst held ég alltaf. Þetta pössunardót reddast alltaf, hef engar áhyggjur af því.
Hlakka bara til að sjá ykkur elskurnar mínar.
kv. frá S-31



 
Sælar

Ég kemst núna á fimmtudaginn. En á erfiðara með þann næsta.

Kv,
Vaka



 
Hurru jæja, hvernig er þá þessi vika fyrir saumó :) Miðvikudagur og fimmtudagur er á lausu og nú fer fram kosning hvað hentar best og ákveða svo :) Koma svo og segja hvað ykkur finnst :)
bæjó
Helena



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel