left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Saturday, November 18, 2006
 
Já ég er ekki smá ánægð hvað þið voruð duglegar að borða :) alltaf gott að borða sko...... Þó svo að það hafi verið þessar frábæru fréttir í saumó þá var kókið ekki opnað... ætli ég komi ekki bara með flöskuna í næsta saumó.... láta hana ganga á milli saumóa þangað til hún verði opnuð!!!! hehehehe
Það styttist óðum í ferðina til Dubai, var að skoða veðurspánna þar og það er spáð 30° c hita þannig að það verður smá tilbreyting frá kuldanum hér á fróninu :) Nú er bara að leggja lokahönd á æfingarnar, mar fer ekkert að taka einhverjar sýruæfingar næstu daga... jahh nema kannski í fyrramálið :) tíhí
Annars segi ég bara brrrrhhhh núna en hot hot hot á fimmtudaginn....
Sjáumst í jólaföndursaumó, þ.e. ef ég hef orku í það.... kem heim frá Dubai á mánudeginum og svo er körfuboltamót helgina eftir.... úff púfff..... hlakka til að komast í jólafrí til að slaka aðeins á eftir annasama daga.... ehe
Bæjó spæjó




Thursday, November 16, 2006
 
Ég get verið á bíl og eða þegið far!!!
V




Wednesday, November 15, 2006
 
Hæ hó, hlakka til að sjá ykkur á morgun. Erna, Vaka, Sonja og Hildur koma úr Rvk., sem ég veit um... Þannig að endilega sameinið í bíl :) Veit ekki enn með Jónínu.....
Jæja, ætla að fara að undirbúa meira :) hehehe...... Nú verður bara sukk og svínari dömur :) hehehehe



 
hmmmm..... hvenær hafa saumó venjulega byrjað???? Eigum við ekki að segja á milli hálf 8 og 8 :)




Tuesday, November 14, 2006
 

Ég ætla að mæta á fimmtudag. Hvenær á ég að mæta? 18 eða 19 eða?????
Vaka kaka



 
Frábært Sonja ef þú nærð að breyta, yrði geggjað að þú kæmist.... Langt síðan mar hefur séð þig :) Heyri í þér




Monday, November 13, 2006
 
Minni á SAUMÓ á FIMMTUDAGINN, þ.e. eftir 3 daga...... Be there or be square!!!! Láta vita hverjir komast svo ég viti hvað ég þarf að búa til mikið af nammi..... :) hehehehe




Sunday, November 12, 2006
 
Hæhæ skvísur
Já já nú er maður bara í vetrarríkinu á Sauðárkróki. Snjór snjór og aftur snjór. Talandi um að það sé alltaf svo stabílt veðru hér fyir norðan að þegar það er snjór þá er bara snjór en ekki rigning og snjór til skiptist eins og í henni Reykjavík. En sei sei nei nú var ég vitni að öðru. Kom hingað í snjó. Næsta morgun var allt orðið autt og slagveðurs rigning sem breyttist svo í snjókomu og skafrenning. Síðan í nótt snjóaði enn meira og fullt og svo er þessi snjókoma búin að breytast í rigningu. Svo í augnablikinu er rigning. og svo þegar byrjaði að snjóa aftur í fyrradag þá urðu 3 árekstrar hér á mjög stuttu bili. Varð bara aðeins að hleypa úr. Fannst þetta svo ógeðslega fyndið því stundum eru norðan menn að hlæja af borgarbúum að allt fari í bál og brand í umferðinni þegar það snjóar í borginni. Já annars er ég búin að vera í Svíþjóð í viku áður en ég kom hingað. Haukur var það i viðtali vegna námsstöðu sem hann sótti um á sjúkrahúsi þar og guess what hann fékk stöðuna svo hann á að byrja að vinna þar um miðjan janúar. Já flott hjá kallinum að fá vinnuna. Þetta er sem sagt á sjúkrahúsi í bæ sem heitir Borås sem er 60 km frá Götaborg. Já svo það er bara allt í gangi. Fanney fær þó smá sting í magan við tilhugsunina við að flytja en þetta verður vonandi í lagi. Á bara eftir að sakna ykkar svo mikið og fjölskyldunnar og þannig.
Jæja skrifa meira seinna ætla að fara að æfa kannski smá ef ég get fyrir börnum.
síjú beibs. Fanney
Helena ég kem ekki heim frá Sauðó fyrr en næsta sunnudag svo ég kemst því miður ekki í saumó en ég vona að einhver hringi og láti mig vita um leið ef það verða einhverjar kjaftasögur takk fyrir.



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel